Bloggsíða Hannesar Sig.
Vinnufélagar
Almenningur
Kórfélagar
mynd dagsins

VARÚÐ!!! KONA UNDIR STÝRI 

"afi

 VARÚÐ !! KONA UNDIR STÝRI

20.11.2008 11:46:58 / nesco60

Íslendingar í vanda

Jæja gott fólk. Enn og aftur er það gamla sagan. "How do you like Iceland"?? - Ég held að þetta sé spurning sem flestir veigra sér við að spyrja í dag. Hinn almenni borgari á Íslandi finnur fyrir því að það er ekki auðvelt að vera Íslendingur í útlöndum á þessum umbrotatímum. Hvers vegna ?? - Hvers vegna láta menn óánægju sína í garð Íslenskrar fjármála-óstjórnar bitna á "okkur litla fólkinu" sem engu ræður.......eða hvað. Hver hefur ráðið hverju hingað til á Íslandi? - Hverju hef ég ráðið. Ég hef til dæmis ráðið því hvort ég ætla að láta stjórnast af sömu lögmálum og ráðið hafa ríkjum í ríkisrekstrinum. Því miður verður alltaf hluti af mínum eigin rekstri að einhverju leyti háður óstjórn annarra, en ég get ráðið ansi mörgu sjálfur samt. Ég hef til dæmis aldrei gleypt þá kenningu að hægt sé að treysta á verðmæti sem ég sé ekki. Verðbréfaviðskipti hafa alltaf verið ótryggur miðill í mínum huga og ég hef sem betur fer aldrei hætt mér út í þá hringiðu. Allt þjóðfélagið okkar hefur verið gegnsýrt af þessu fári og enginn maður með mönnum nema vera með í kapphlaupinu. - Kannski er það rétt sem hæstvirtur núverandi forsætisráðherra sagði einu sinni í kastljósþætti, að það væri beint samhengi milli þess að vera fátækur og að vera latur.........kannski er ég bara latur, eða of huglaus til að stökkva til og reyna að næla mér í bita af stóru kökunni. Kannski er ég bara það barn í fjölskyldunni sem er alls ekki til í að slást við systkini sín um matarbitana..........já, kannski er ég bara bæði latur og huglaus og þess vegna ekki nógu duglegur að bjarga mér. - Að vísu getur maður hvorki valið sér systkini eða foreldra, en maður getur valið sér ríkisstjórn. Ég er heppinn með það fyrrnefnda, en ekki hið síðarnefnda. Mér var innrætt það með móðurmjólkinni að frjálshyggjan væri ekki góð pólitík, og það hefur líka sannað sig rækilega. Ég er ekki að tala niður einstaklingsfrelsið, en öllu frelsi fylgir ábyrgð og hún hefur brugðist í íslensku kapitali. - Já, ég get valið og ég hef notað valfrelsi mitt til að taka EKKI þátt í neyslukapphlaupinu. Ég hef notað það til að slökkva á sjónvarpinu þegar kaupæðisauglýsingarnar dynja yfir og ég hef notað það til að passa mig á að láta ekki ginnast af þeim sem hæst tala..............ég trúði til dæmis aldrei á meint "góðærið" þó Davíð og Geir blésu það út þangað til annar hver Íslendingur var búinn að koma sér í óviðráðanlega skuldsúpu. Þetta var alltaf "bóla" í mínum huga. Illkynja mein sem gat ekki annað en eitrað út frá sér, meðan ekki var gerð tilraun til að stjórna því hverjir fóru hvernig með alla þessa peninga sem áttu að vera til í þjóðfélaginu. - Hverjir voru að hugsa um hag almennings???? - Ríkisstjórnin? Útrásarvíkingarnir? Almenningurinn sjálfur? Ég veit ekki..........allavega hefur almenningur verið nógu duglegur að kjósa kapitalið yfir sig. Alveg sama  á hverju gengur............það er allt gleymt þegar menn eru komnir í kjörklefana. - Er það ekki annars alveg á  hreinu að við ætlum að kjósa Dabba og Geira áfram????? - Ég veit allavega hvað ég ætla að gera mið mitt kosningafrelsi. Nákvæmlega það sama og ég hef gert alltaf hingað til. Ég ætla ekki að taka það til mín þegar einhver hrópar að mér ókvæðisorð af því að ég er Íslendingur. Ég er stoltur af því að vera Íslendingur og þarf ekki að spyrja útlendinga "how do you like Iceland"?? Ég er ekki háður áliti "Íslandsvina" til að mér líði vel. - Farið vel með ykkur og notið frelsið vel.

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 09:45:52 / nesco60

Mikið um að vera um helgina

Jæja, þá að bresta á helgi enn eina ferðina. Það stendur mikið til þessa helgi. Knattspyrnuleikur fyrirtækjanna okkar, Sandblásturs og Ferró Zink fer fram á morgun í íþróttahúsi Þórs, Boganum á Akureyri. Þar verður barist um bikar sem síðasta árið hefur verið vistaður hér norðan heiða og verður lagt mikið undir til að halda honum áfram í heimabyggð. Dómarinn er starfsmaður sandblásturs, svo ef við missum dolluna þá er ekki víst að hann eigi sæla daga framundan. - Eftir leikinn er svo samkoma hjá kórfélaga sem var svo hugulsamur að velja afmælisdaginn minn til að kalla saman kórinn í mat og drykk. Svo fæ ég náttúrulega afmælisköku hjá konunni líklega verður farið á dansiball eftir það...........Samt gott að ætla sér smá tíma í hvíld, því ég á eftir að skila af mér íbúðinni sem ég var að flytja úr, henda út rusli og þrífa. - Vonandi kemst ég óskemmdur í gegnum þetta allt saman :klikk:
- Meira eftir helgi. - Áfram Ísland, Færeyjar og Sandblástur.......

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 10:43:27 / nesco60

Lítið að gera í vinnunni

Ég veit ekki hvort það er heppilegt að blogga núna ef vinnuveitandinn álpast inn á síðuna og sér að ég er bara að blogga í vinnunni........en ég tek áhættuna. Ef hann er á netinu þá er hann hvort sem er að slóra líka he-he.  Betra að sitja og blogga en að standa og klóra sér í ra.......tinu. Ástandið er nú þannig þessa dagana að við erum virkilega farnir að finna fyrir kreppunni. Sala og umferð um búðina hefur stórlega dregist saman svo maður veit ekki sitt rjúkandi ráð. Helst að manni verði það á að stökkva upp í hillur og þurrka af svo ekki rykfalli allt góssið og líti vel út ef svo ólíkleg vildi til að viðskiptavinur ræki inn nefið. - Annars er árshátíð félagsin á næsta leyti, svo það er í ýmsu að snúast þessa dagana ef vill. - Semja háð og spott um vinnufélagana, skammast út í ríkisstjórnina, skoða Moggann, drekka kaffi og fleira skemmtilegt........já og blogga líka. - Ég hefði bara átt að vera í fríi í dag og klára að flytja. Er að flytja búslóðina mína heim til minnar heittelskuðu í Grenivöllunum, var reyndar búinn að fara með það allra nauðsynlegasta fyrir nokkru síðan,  tannburstann orgelið og nærbuxurnar.......og cheeriospakkann, en allt annað er ég að flytja þessa dagana, húsgögn og annan óþarfa. Reyndar slepp ég nokkuð vel, seldi þvottavélina, hendi þurrkaranum, sófanum og hillusamstæðunni, gef svo helminginn af því sem eftir er, hirði bækurnar og bókaskápinn, húsdýrin öll, hreindýrið, hrútinn og hundinn. Reyndar eru aðeins hauskúpurnar eftir af þeim þarfagripum en þær eru fínasta stofustáss þó konan sé ekki eins hrifin af þeim og ég. Hún er bara ekki búin að átta sig á hversu mikið af jólaskrauti kemst á hornin á "Hreinsa" - Allt í lagi með það, því ég fékk einkastofu hjá henni þar sem ég safna saman gullunum mínum og hleð upp um alla veggi og hillur. Styttan af Búddha fékk þó náð fyrir hennar augum og nú situr hann gleiður, feitur og sæll á hillusamstæðunni,og horfir yfir stássstofuna í Grenivöllunum, skörinni hærra en sjálfur Kristur, sem stendur á neðstu hillu og baðar út höndunum af sannri vandlætingu yfir guðlasti húsráðenda. en hann fyrirgefur þetta vonandi þó síðar verði. - En nú er morgunkaffið farið að þrýsta í pípurnar og eins gott að drífa sig hleypa af ventlinum. -
- Nóg í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 14:29:29 / nesco60

Vísa um "ástandið"

Íslenskrar þjóðar er þrotið lán
hún þraukar ei langa stund.
Væri ekki ráð að "banka" í Brown
og biðj´ann um nokkur pund

Eða eigum við bara að gera innrás í Bretland, taka drottninguna sem gísl og .......( nei þeir myndu aldrei tíma að beila hana út )........Eða eigum við að siga landhelgisgæslunni á tjallana....??? - nei kannski er bara best að fá sér sérrý, tea and toast og reyna að sjatla málin................En Færeyingarnir frændur okkar eru búnir að sýna hvað í þeim býr. Þar eigum við hauk í horni. Minnir helst á stórhug ákeðinna manna í litlu Masai-þorpi í Afríku þegar þeir heyrðu um árásirna á tvíburaturnana um árið. Þeir skutu á ráðstefnu við varðeldinn og slitu svo fundi með þá ákvörðun að gefa New-York búum belju í sárabætur.............betur gátu þeir ekki gert og hjartað á bak við gjöfina alveg gríðarstórt.
- áfram Ísland og Föroyar

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 17:10:20 / nesco60

áfram Ísland.......

Er það ekki sígilt umræðuefni þetta gamla góða "Ísland í dag" - eins og áður hefur komið fram, þá er ekki nokkur heilvita Íslendingur sem lætur sér detta í hug að spyrja "how do you like Iceland" - Nei, frekar fara menn huldu höfði og láta fara lítið fyrir sér. Ég veit dæmi um það að Íslendingar í útlöndum þykjast vera frá frá Tyrklandi eða Íran til að sneiða hjá illindum. Munið þið eftir íslensku konunni sem var vísað út úr verslun í Danmörku fyrir það eitt að vera Íslendingur???? Það næsta sem maður sá í fréttunum var heil hersveit af Dönum í Leifsstöð á leiðinni í Kringluna og Smáratorg til að versla......ég spyr nú bara: Björn, hvar er sérsveitin þín núna............á að láta vaða svona yfir okkur, eða eigum við að taka ríkisstjórnina og framselja hana til að sjatla málin.
Hefði ekki bara verið betra að kjósa Ástþór á sínum tíma...........það er miklu heiðarlegra að vera ruglaður og bera það utan á sér heldur en að vera ruglaður og nógu klókur til að fela það. - Nú eru undarlegir tímar framundan. Þeir sem hæst hafa talað og verið öruggastir með sig í skjóli eigna og auðs, þeir láta núna fara lítið fyrir sér, en það  er ekki neinn bilbug að sjá á litlu köllunum sem alltaf hafa verið að skíta á sig, þeir halda því bara áfram. Munurinn á þeim og stóru skítmokurunum er sá að þeir litlu geta skeint sig sjálfir. - Ég minnist orða hæstvirts núverandi forsætisráðherra í kastljósi fyrir nokkrum árum þegar hann sagði að það væru bein tengsl milli fátæktar og leti...........já ég tók rétt eftir, hann sagði þetta blessaður eyminginn og hefur sjálfsagt trúað því sjálfur. - Sumir eru bornir í heiminn á ákveðnu þrepi sem reynist svo ágætis stökkpallur til tækifæra, auðs og frama.........niður fyrir þetta þrep sjá sumir aldrei og skilja ekki að það sé virkilega hægt að lifa lífinu í fátækt og "aumingjaskap" af því að "tækifærin eru allsstaðar"
Og tækifærin hafa mann virkilega notað...............og það með stæl svo gjörvöll heimsbyggðin hefur eftir því tekið. - Já já, þetta er allt saman alveg ágætt. Nú er hann að skella á með stórhríð og djöfulgangi svo maður hefur þá kannski eitthvað annað að hugsa um en kreppuna. guði sé lof...............vona bara að það linni ekki veðrinu fyrr en í vor. Kannski fer svo Hekla gamla að gjósa líka. Gaman, gaman, allt að gerast.......áfram Ísland. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 17:36:47 / nesco60

Já já.....svona er Ísland í dag.

gaman að sjá að það eru þó einhver viðbrögð við blogginu mínu frá í gær............að sjálfsögðu bara einhverjir íhaldstittir sem þurfa að vera ósammála vegna þess að ég var að drulla yfir ríkisstjórnina he-he.............En samt sem áður ætla ég alls ekki að reyna að standa við allt sem ég sagði, þetta var ein hlið á málinu og þær eru vissulega fleiri. Það varð banaslys á Suðurlandsvegi í dag og enn og aftur er farið að tala um tvöföldun............en hvað ætli gerist ef allir vegaspottar landsins yrðu tvöfaldaðir......jú jú, allt í lagi að hafa vegina í lagi, það er þá allavega ekki hægt að kenna samgönguráðherra um banaslysin............en ég sé fyrir mér að þegar/ef allir vegir verða komnir í "viðunandi" ástand, þá hugsa menn með sér að nú geti þeir komist milli staða á styttri tíma, og þess vegna lagt af stað aðeins seinna, og afleiðingin verður sú að kösin á vegunum verður alveg jafn mikil, en bara í styttri tíma í einu, og slysahættan verður ekkert minni, þvi Íslendingar eru ekkert gefnir fyrir það að láta segja sér til um það hversu hratt þeir mega keyra................umferðarskilti með boðum og bönnum eru bara risavaxnir sleikipinnar í augum flestra sem um vegina keyra.......................það þarf að fara að borga löggunni betra kaup og efla gæslu á vegunum og láta menn hafa það óþvegið ef þeir hlýða ekki lögum...................Ef maður t.d. keyrir Sæbrautina Reykjavík á 80 km.hraða ( 60 km.hámarkshraði), þá fer bara löggan fram úr manni eins og ekkert sé sjálfsagðara.............comon..............eru þeir ekki löngu búnir að missa tökin á þessu. - Byrja núna að sekta, sekta, sekta, og ef ekkert gengur, þá bara að taka menn út úr bílunum og buffa þá..........he-he.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 17:55:52 / nesco60

Það er góðæri á Íslandi.

Jæja krakkar. Nú er gaman að vera Íslendingur. Ég er hræddur um að eftir það sem nú er að ganga yfir þá þori menn ekki einu sinni að spyrja útlendinga hinnar klassísku, sívinsælu spurningar "how do you like Iceland" - Nú er ríkisstjórnin okkar loksins búin að skíta svo alvarlega á sig að ólyktin er farin að breiðast um allan heim. Ríka, fallega og hamingjusama þjóðin þarf nú ef til vill aðstoð frá alþjóða gjaldeyrissjóðnum til að skeina sig. Svoleiðis hjálp hefur gjarnan verið boðin þjóðum þriðja heimsins til að rétta úr fátæktar-og óstjórnarkryppunni. :(  Fyrir áratug eða svo hrópuðu áróðursmeistarar frjálshyggjunnar á öllum torgum "ÞAÐ ER GÓÐÆRI Á ÍSLANDI" - Þessu héldu þeir áfram þangað til þjóðin fór að trúa þeim, og lagðist í eyðslu og lánatökur, eins og reyndar ríkisstjórnin gerði sjálf. - Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. -  Um hvað snerust fréttirnar fyrir svona tíu árum síðan??? - Fiskveiðar. landbúnaðarmál, samgöngur og landsins gagn og nauðsynjar yfirleitt, en núna falla þessi mál algerlega í skuggann af endalausum fréttum af verðbréfaviðskiptum, eignatilfærslum mill peningablokkanna, nýstofnuðum hlutafélögum og "holding kompaníum" sem er sett á laggirnar til að styrkja stöðu peningamaskínunnar svo hún eigi auðveldara með að gleypa stærri bita. ekki það að verið sé að auka fjármagnið endilega. Það skiptir minna máli.. Það sem skiptir mestu er að líta sem best út á pappírum. Og þeir sem stórtækastir eru í þessu "búa til" heilu fjöllin af seðlum, eða þeirra virði, og kaupa það sem þá lystir út á þetta kredit. -  Þetta er nú það sem frjálshyggjuöflin vilja, að þeir sem eru stærstir og sterkastir geti aukið sér bolmagn til athafna og menn reyna í alvöru að trúa því að þetta sé gott fyrir almenninginn í landinu....................Munið þið eftir viðtali við bankastjóra Landsbankans á dögunum, þar sem hann var spurður álits á því hvort það væri til fátækt á Íslandi ??.......hann var svo nýkominn úr peningamaskínunni, að það var ennþá dollaramerki á enninu á honum þegar hann sagði að það væri af og frá, og vitnaði í hagtölur bankans sem væru jákvæðari en sambærilegar jöfnur frá bönkum á hinum Norðurlöndunum. daaaaaaa...:klikk:....maðurinn var algerlega raunveruleikafirrtur, skelfileg sönnun þess að til eru menn sem halda að fátækt eða velmegun séu bara tölur á tölvuskjá og tilveran öll leikur að verðbréfum. - Já, góðir hálsar, það er góðæri á Íslandi. Allavega góðæri hjá þeim sem trúa því að það sé réttlætanlegt að gera hvað sem er á meðan það er löglegt, ef það þjónar þeim tilgangi að auðgast á því..............................almannahagsmunir????  hvað er það ???? Hefur frjálshyggjan einhverntíma hugsað um þá í alvöru.....ég held ekki. Menn hafa rétt til að verða ríkir ef þeir geta, og ef það kostar það að þeir troða á einhverjum í leiðinni, þá hafa þeir sem á er troðið sama rétt til að verja sig, sem er reyndar mjög gott, en ef þeir geta ekki varið sig þá er það bara þeirra eigin mál.....sorry kallinn  minn, það er ekkert bakland að hafa ef þú ert ekki nógu frekur og yfirgangssamur, bara þitt tap.........- Já ríka þjóðin sem er að stíga stór framfaraskref ( aðallega þó í peningaútrásinni ) hún býr svo illa að samgöngumálum að tveggja bíla árekstur á Reykjanesbrautinni í morgun orsakaði tafir á áætlun eins virtasta flugfélags í heiminum....................æi, verktakinn gafst upp við að laga götuna í nóvember síðastliðinn og það er enn verið að rífast um hver á að klára verkið.........skítt með það þótt deyji einhverjir í umferðasslysum þangað til herrarnir vakna af ölvímu útrásarkjaftæðisins og fara að hysja upp um sig og hugsa um það sem að "þóðinni" snýr.-
En hver er ég að vera að bulla þetta vitandi það að á Íslandi í dag er auðurinn í verðbréfum og hagtölur sem sýna lánstraust bankanna miklu meira virði en mannauðurinn, og þannig verður það á meðan menn láta "Davíðana" heilaþvo sig með góðærishjalinu. - Einhvern veginn hef ég samt þá trú þrátt fyrir allt, að í næstu kosningum gerist það ótrúlega enn og aftur að þjóðin skjóti sig áfram í halta fótinn og kjósi íhaldið.
- Amen. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 11:16:40 / nesco60

Páskafrí, ferðalag, Múhammed og fl.

Jæja kæru bloggarar, þá eru að koma páskar rétt eina ferðina. Þetta slítur náttúrulega sundur fyrir manni vinnudagana eins og venjulega. Annars verður ágætt að komast í smá pásu frá þessu í nokkra daga. Við erum búin að vera að setja upp nýtt tölvukerfi í vinnunni og þetta er eins og að læra að ganga upp á nýtt.......endalaust að detta á rassgatið og með sár og eymsli á sálinni eftir hvern einasta dag. Ég hélt alltaf að tölvukerfin væru smíðuð með það í huga að einfalda hlutina, en það virðist vera öðru nær. Einföldunin í þessu tilviki kostar allvega helmingi meiri pappír, þrefalt meiri vinnu og margfalt fleiri handtök fyrir hverja aðgerð heldur en í gamla kerfinu, svo maður spyr sig.???? og verður fátt um svör. - Búinn að vera eins og gömul, undin gólftuska á hverju kvöldi undanfarinn mánuðinn. :^) - Ég var að hugsa um að keyra suður á morgun, en vegna afleitrar veðurspár fer ég ekki fyrr en á föstudaginn langa. Allt í góðu með það, get tekið góðan tíma í keyrsluna enda dagurinn extralangur að venju he-he. - Annars ætti maður að varast allt skop og flím um málefni sem tengjast trúarlegum hefðum þessa dagana svo maður verði ekki tekinn af lífi fyrir guðlast. Mér er hins vegar ekkert sárt um það þó menn hafi sínar hugmyndir um það hvernig Guð lítur út, og ekki heldur þótt menn birti myndir af apparatinu..........smelli einni hér fyrir aftan svona af gamni mínu :lol: -  Get engan veginn skilið að eitthvað sé svo heilagt að það megi ekki tjá sig um fyrirbærið.....maður veigrar sér þa bara við því að hugsa um það líka, og þegar svo er komið, þá er stutt í að maður efist um tilgang fyrirbærisins. - Svo ég láti nú í ljós mína skoðun, þó lífshættuleg sé, þá sé ég Múhammed fyrir mér sem gamlan gráskeggjaðan mann, ákaflega virðulegan og reffilegan, þó gæti hann allt eins hafa verið forljótur, en það breytir engu um þær kenningar sem hann setti fram, og það er það sem heila málið ætti að snúast um.........en hvað veit ég? Ég bara spyr.
 Gleðilega páska elskurnar og gangið varlega um hin gullnu hlið trúarinnar um hátíðina. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 17:43:01 / nesco60

Ja hérna hér......

Ég á nú ekki eitt aukatekið orð. Kominn 12.mars og ég hef ekki bloggað síðan í febrúar.......hvert fór þessi blessaði mánuður.......?? mér finnst ég hafa verið að blogga í gær. he-he. Æi það er svo sem ekki margt að skrifa um í dag, þetta er allt sama gamla fokkið fram og aftur endalaust. - Búið að vera óvenju mikið álag undanfarið, brjálað að gera í vinnunni og kallinn hefur ekki einu sinni komist í skólann, bara skriðið á kóræfingar eftir vinnu og þaðan í rúmið með nóturnar klingjandi í kollinum, eða legið í veikindum á veikindi ofan. - Það datt einhverjum snillingnum í hug að láta gera tónverk við íslensku stjórnarskrána, alla 81 liði hennar og tónskáldið gerði ekki neinn lítinn sætan sveitarómans úr þessu, neeeeeeii.... hún gerði sko gríðarlega flókið tónverk, sem er það erfiðasta sem ég hef lent í um æfina, og kalla þó ekki allt ömmu mína þegar kemur að því að læra tónlist. Vakna með martraðir reglulega og heilu kaflarnir úr stjórnarskránni steypast um hugann eins og beljandi gruggugt fljót í leysingum. - Ja þvílík leið til að læra stjórnarskrána!! . En þessu lýkur á laugardaginn með frumflutningi meistarastykkisins á fjölum Ketilhússins og þá er bara að fara að huga að því að finna heppilega eftirmeðferð til að lágmarka möguleikana á ótímabærri sturlun. Þó að ég sé  kominn á "efri ár" eins og unglingarnir í Köben segja, þá langar mig samt ekki til að eyða þessum fáu sem ég á eftir í það að rangla um götur Akureyrar, tautandi kafla úr stjórnarskránni. Þá er nú faðirvorið betra.............eða bara stefnuskrá VG. - Hvað sem er........ældkfgælkeporipamgs.cv mæ,lxckzfgposerajskldmflæslæ.......Nei ég segi nú bara svona.......

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 10:39:02 / nesco60

Góða veðrið á Íslandi.

Jæja góðir hálsar, nú er bara bloggað á hverjum degi. Ég hef verið spurður að því af hverju ég noti ekki bloggsíðuna mína, en nú auglýsi ég eftir viðbrögðum frá þeim sömu.:S - Ég er ekki alveg eins pirraður í dag og í gær, enda er komið sann-íslenskt vetrarveður. Sannkallaður sálarljómi, þessi yndislegu, hvítu fögru korn, sem svífa niður og leggja á jörðina þykkt og mjúkt teppi, sem sífellt breytir formi og endurskapar landslagið.:D - Nú er kominn tími til að fara út í göngutúr berhöfðaður og skilja trefilinn eftir heima. Láta snjóa niður í hálsmálið og inn í eyrun til að finna sem best fyrir þessum upplífgandi gleðigjafa sem snjórinn er. - Fæ aldrei nóg af því að vera barnið sem festir sig í snjóskafli, leggst niður og lætur fenna yfir sig og spjallar við hrafnana og snjótittlingana, sem eru þeir einu sem nenna að leika við mann úti í svona veðri. - Segið þið svo að það sé ekki dýrðlegt að vera íslendingur.;) -

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 13:36:00 / nesco60

Pirraður.

Ég er nú allajafna ekki svo málglaður að ég sé að opna mig að óþörfu á blogginu ef ekkert er markvert að gerast. - Verð þó að tjá mig um það sem einna helst er að pirra mig í augnablikinu. Ég hef verið að brasa við að setja inn á bloggsíðuna myndir af barnabörnunum minum, en annaðhvort er ég heimskur eða tölvan. Og þar sem allar líkur benda til þess að ég sé alveg sérlega vel heppnað eintak, vel gefinn og skarpur, þá hlýtur að liggja ljóst fyrir að tölvudruslan er ekki nógu snúin til að höndla með myndir af jafnfallegum börnum og baranabörnunum mínum......svo ég er hættur að reyna í bili a.m.k. en ekki búinn að gefast upp. Það hlýtur að vera hægt að massa þetta inn einhvern daginn. - Annars er ég bara góður á því og helst að frétta að ég skellti mér á dansnámskeið í gær, og það var ekki að sökum að spyrja að ég var valinn í landsliðið á stundinni. - Það lagðist af öll starfsemi í húsinu um leið og ég renndi mér í fyrsta dansinn með glæææææsilegr sveiflu. En þetta var rosalega gaman og ég var bara að hita upp. Djæf og skottís voru á dagskrá og síðar verður bætt í snúninginn og dansheiminum rúllað upp. Fylgist með!!!!! - heitar fréttir eftir næsta danstíma. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 17:43:34 / nesco60

Barnabörnin og fleira

Jæja, best að setja nokkur orð hérna á bloggið. Ég er búinn að vera að skoða barnabörnin mín á netinu. búinn að sjá að Hanna Bríet er lík mömmu sinni þegar hún er syfjuð, en pabba sínum þegar hún skælir......kannski man ég bara eftir honum skælandi....sorry, en mér bara finnst þetta. Hannes Bjarnar er með einhver óþekktarsvip úr móðurættinni, einhvern svona prakkarasvip, EN NEFIÐ FRÁ PABBA SÍNUM, HÚRRA...... það er sko alveg á hreinu. Það var kominn tími til að einhver kom inn í þessa ætt með nef-gen sem gátu útrýmt mínum he-he. Annars eru þetta alveg yndislegar litlar mannverur. -

Bless í bili elskurnar....:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 18:50:09 / nesco60

nýja árið

Halló bloggvinir. Segiði svo að ég bloggi aldrei......ha.. bara að óska ykkur gleðilegs nýs blogg-árs og takk fyrir það gamla. Helstu fréttir. Haldiði ekki bara að hann ég sé orðinn enn einn afinn. Hann Viddi minn gerði sér lítið fyrir, að vísu með dyggilegri hjálp konunnar sinnar, og smellti inn einu stk. stúlkubarni rétt fyrir jólin. Hann er ekki enn búinn að læra að búa til stráka, en ég er að reyna að kenna honum það. En hann fékk þarna aukadaga framan við jólafríið sitt, sem er bara gott mál.......hnitmiðað skot eftir allt saman sjáiði til. - Svo er ég að fá annað afabarn núna á nýju ári....það ku vera sveinbarn og er víst bara rétt í burðarliðnum þessa dagana. En reyndar yrði ég ekki hissa þó þau yrðu tvö....ellegar þrjú miðað við ummál og bumbustærð fósturgeymslunnar. Þvílíkur belgur........En ennþá hefur bara eitt barn greinst á ratsjá og þar við situr þangað til annað kemur í ljós. - ég er þessa dagana að vinna að fyrirlestri um íslenska sönglagið. Þetta er liður í mínu tónlistarnámi og nú þarf að leggja nótt við dag til að klára og stessið alveg að fara með gamla........Annars reyni ég líka að sinna helstu menningarmálum Akureyringa svona með hinni hendinni, og núna á eftir er ég að fara að halda dansleik með öðrum meðlimum Tónlistarfélagsins og völdum bæjarbúum. Svo þið sjáið að ég er algerlega ómissandi......reyndar fæ ég frítt inn....þetta er assgoti dýrt samkvæmi fyrir fátækan afa sem fer að nálgast eftirlaunaaldurinn......það verður margréttað og fullt út úr dyrum af skemmtiatriðum öðrum en þeim sem ég sé um........sem felst aðallega í því að vera á staðnum, ég held það sé nú bara ekki svo lítið út af fyrir sig. - kampavín og fagrar konur flæða þarna um gólfin fram á nótt skal ég segja ykkur.......jamm og jamm.. ég er farinn í sturtu og fínu fötin. Konan komin í sín svo það er hvort sem er of seint að.......e-hemmmmmmmm fyrir ballið. Bless.

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:42:52 / nesco60

Bros í umferðinni

Börnin eru alveg yndislegar mannverur. Í gær var ég að keyra Skarðshlíðina í hálkunni og var að hugsa um hvort bíllinn hefði sig upp litlu brekkuna ofan við Bogann. Tek fram að ég var ekki kominn á nagladekkin. Efst í brekkunni er gangbraut og þegar ég kom að brekkurótunum, sá ég að við gengbrautina stóð lítill strákur með skólatösku á bakinu. Nú voru góð ráð dýr! - Átti ég að láta vaða til að komast upp í einni tilraun og þar með að brjóta á rétti saklauss barns sem stóð og beið þess að ég stoppaði, eða átti ég að stoppa, vitandi það að ég kæmist ekki af stað aftur öðruvísi en að bakka alla leið niður og reyna við brekkuna aftur??

Ég valdi síðari kostinn, enda löghlýðinn maður og auk þess vil ég vera börnum fyrirmynd í umferðinni. - Strákurinn lallaði yfir götuna, en sá þegar hann kom yfir að ég var í vandræðum með að hefja farartækið af stað aftur. Hann sneri sér við með greinilegum áhyggjusvip og ég gat lesið samkenndina úr stórum augunum. Ég bakkaði niður og reyndi aftur, og þegar ég skreiddist naumlega yfir hraðahindrunina sem gangbrautin er á, þá stóð þessi litli engill ennþá við götuna, brosti feimnislega til mín og veifaði. Honum var greinilega létt, og svo skokkaði hann áfram leiðina heim. - Þetta hlýja fallega bros hans var eins og sólargeisli í snjókomunni og slabbinu og ég óska öllum þess að fá svona bros af og til. 


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 16:16:12 / nesco60

Allt að gerast..

Jæja góðir hálsar, nú er mikið að gerast í tilverunni. Danmerkurferð á næstu grösum hjá okkur í vinnunni og árshátíð í Köben :lol: - HItti trúlega helminginn af fjölskyldunni minni þar ytra.......þetta eru flækingar sem tolla ekki á klakanum. -  Um síðustu helgi var ég svo að syngja á tónleikum með Kór Glerárkirkju, kórfólki af Austfjörðum og Synfóníuhljómsveit Norðurlands. Verk sem heitir Requien eftir Gabíel Fauré. Þetta verður flutt aftur á næsta laugardag í kirkjumiðstöð Eskifjarðar.-- muna það gott fólk. Bara drífa sig austur á tónleika......Þetta er einstakur viðburður, ó já.

En nú ætla ég að drífa mig í skólann og syngja eitthvað alveg rammfalskt og skemmtilegt fyrir kennarann. Maður er alltaf að komast betur og betur að því hvað maður kann lítið eftir því sem maður lærir meira..........:klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Þínir flokkar
RSS tengill